Að dreyma nýjan heim

Að dreyma nýjan heim

Við stöndum frammi fyrir undarlegri stöðu í heimsmálum og sjálfbærni. Annars vegar er heimur skýrslna og reglugerða, þar sem reynt er að stýra sjálfbærni með mælikvörðum. Hins vegar er stafræni heimurinn, oft hlaðinn óskiljanlegum skilaboðum. En undir yfirborðinu er eitthvað stærra að gerast: kerfin sem hafa haldið utan um líf okkar eru byrjuð að brotna undan eigin þunga.

Ég hef velt því mikið fyrir mér hvar við finnum von í þessu, nær mennskunni.
Þegar fólk verður fyrir áföllum eins og flóðum eða snjóflóðum, breytist loftslagsvinnan úr því að vera tæknilegt úrlausnarefni í að vera spurning um lífskraft og andlega seiglu. Þar duga Excel-skjöl skammt. Á þeim stundum þurfum við leiðtoga sem skilja að við erum ekki bara að bjarga innviðum, heldur fyrst og fremst að mæta hvert öðru sem manneskjur.

Gjáin á milli kerfis og tengingar

Mesta áskorunin er hversu djúpt við höfum fjarlægst hvert annað, öll með síma í hendi. Er það að gleymast hvernig á að deila sameiginlegri sýn sem byggir á einingu og kærleika? Á netinu magnast spenna með tíðum fréttum af óeirðum, en í raunveruleikanum,  þegar við stöndum frammi fyrir sameiginlegum áskorunum, finnum við raunverulega þörf fyrir samvinnu.

Það sem situr hvað mest í mér, er að þessi tími er tækifæri til að muna hvernig við dreymum saman. Við þurfum forystu sem þorir að horfa út fyrir reglugerðir og mæta fólki þar sem hjartað slær, sérstaklega þegar alvöru áskoranir mæta.

Að rækta seigluna

Raunveruleg loftslagsvinna krefst þess sem kalla má andlega seiglu og tjáningu í góðri hreinskilni, vil ég leyfa mér að orða. Það snýst um:

  • Að taka ábyrgð á eigin tilfinningum: Að finna pirringinn vegna ástandsins en varpa honum ekki áfram á næsta mann.

  • Að mæta aftur og aftur: Að byggja upp traust hægt og rólega, jafnvel þegar við erum ósammála.

  • Að velja samfélag: Að sjá náungann sem fjölskyldu, óháð pólitískum skoðunum og mæta með brosi.

Breytingar verða ekki til í búbblu skrifstofunnar, heldur í því hvernig við mætum hvert öðru í byl og brjáluðu veðri. Við erum ekki bara að gera við heiminn; við erum að umbreyta því hvernig við lifum í honum. 

Þess vegna býð ég fram aðstoð með leiðtogamarkþjálfun gegnum BGlobal, til að styðja við leiðtoga í sjálfbærni að efla seiglu, það er svo margt undir. 

Hlý kveðja,
Berglind.

0 athugasemdir

Skrifa athugasemd