Bókin mín um Sólu og jörðina

Bókin mín um Sólu og jörðina

„Þetta er bók sem ég vil að barnið mitt alist upp með.“

Ég hefði gjarnan vilja hafa fleiri bækur um umhverfismál fyrir drenginga mína þrjá til að lesa með þeim þegar þeir voru litlir. Það voru til ein eða tvær en engin þeirra talaði um tengingu og mögulega upplifun með náttúrunni. 

Þeir voru sannarlega mikið úti að leika, fótboltastrákar allir sem einn, og það var mikil útivera daglega. Við fórum líka mjög oft upp í Heiðmörk auk þess sem við búum við Elliðaárdalinn og reglulega heimsóttum skóginn.

Sagan um Sólu og heilun jarðar, er ekki bara skrifuð til að hvetja börn og foreldra til útiveru  og vera forvitin um fallegu litlu hlutina í náttúrunni, heldur líka að umvefja þessa stund að lesa saman rólega. Þess vegna er hún rituð í ljóðum, þar sem mögulega þarf að skoða hverja mynd vel og útskýra hvað ljóðið þýðir.

Bækurnar eru mitt hjartans mál, og þær eru kjarni þeirrar sjálfbærnivegferðar sem ég óvart lenti á. Eða ekki svo óvart. Sá geiri hefur varla fundið sinn farveg almennilega, og svo datt hann inn í hyldýpi skriffinsku og mælikvarða.

Það er í raun ekkert sem við skiljum alveg eða kunnum alveg, nema tengja það við tilfinningu. Og fyrr en við í alvöru tengjum og finnum fyrir náttúrunni, þá getum við fyrst byrjað að sýna umhyggju fyrir náttúrunni, svona af hjartans lyst.

Velkomið að panta bókina hér, en hún er fáanleg á Amazon og fljótlega í verslunum Pennnans/Eymundssonar.

Njótið vel,
Berglind. 

 

0 athugasemdir

Skrifa athugasemd