Hver hugsar um fólkið í sjálfbærni?

Caring for the People Who Care for the Planet

Í mörg ár hugsaði ég mikið um hvernig hægt væri að fá fyrirtæki og stofnanir til að huga að sjálfbærni í rekstri. Svo fór ég að taka betur eftir því hvað fólkið sem vinnur að þessum breytingum var sjálft að upplifa og fást við.

Smám saman varð ég afhuga sjálfbærnistefnunum sjálfum og fór að hafa meiri áhuga á fólkinu sem var að reyna koma málunum á blað og framkvæma.

Þar á meðal var ungt fólk sem hafði valið sér starfsvettvang innan sjálfbærni og var að reyna að knýja fram breytingar innan fyrirtækja og stofnana þar sem þau komu oftar en ekki að lokuðum dyrum, hindrunum eða mjög þungum sköflum!

Og margt þeirra var þegar með mikið á sinni könnu. Krefjandi starf, ung börn og fjölskyldulíf, áhyggjur af loftslagsmálum og framtíðinni, væntingar úr mörgum áttum og þessi tilfinning að það sé alltaf eitthvað meira sem þau ættu að vera að gera.

Ég fór því sífellt að velta sömu spurningunni fyrir mér: Hvernig getum við ætlast til þess að fólk hlúi að jörðinni ef það er sjálft örmagna? 

Kannski þurfum við líka að hugsa um fólkið sem vinnur að sjálfbærni þegar við tölum um sjálfbærni. Ekki sem eitthvað sem stendur utan við verkefnið, heldur sem hluta af því að geta haldið áfram að sinna því til lengri tíma.

Ef þú vinnur að sjálfbærni, taktu þá aðeins eftir því hvað þú ert að fást við samhliða starfinu sjálfu. Hvað myndi hjálpa þér að gera starfið einfaldara og léttara?

Ég mundi glöð aðstoða með aðferðarfræði markþjálfunar og finna nýja sýn á stöðuna. Þetta er flestallt í huga okkar og við því er ráð.

Velkomin að hafa samband. 
Berglind@Bglobal.is 

0 athugasemdir

Skrifa athugasemd