BÆKUR

Ég verið að skrifa undanfarið ýmsa texta sem allir hafa þeir það sameiginlegt að tengjast sömu pælingunni sem liggur á bakvið BGlobal hugmyndafræðinni.

Hvernig minnum við okkur á að við tilheyrum náttúrunni en stöndum ekki utan hennar? Hvernig ræktum við umhyggju fyrir jörðinni í heimi sem kallar sífellt á meiri hraða? Og hvaða áhrif hafa tengsl okkar við náttúruna á tengslin við okkur sjálf og hvert annað?

Sögurnar mínar og ljóðin hafa sprottið upp úr þessum vangaveltum. BGlobal - vertu jörðin, eða hugsaðu um hana að minnsta kosti af heildindum.

Náttúran hefur alltaf verið staður þar sem ég finn innblástur, ró og tilfinningu fyrir einhverju sem er stærra en við sjálf. Hér á Íslandi er hún það allrabesta. Hún getur verið hrikalega ógnvekjandi en einnig dásamlega falleg og viðkvæm, kyrr og villt í senn og minnir mig stöðugt á að við erum hluti af lifandi heild. Tengd hvert öðru og jörðinni á fleiri vegu en við sjáum eða skiljum.

Mig langaði að færa eitthvað af þeirri tilfinningu inn í textana, sögurnar og ljóðin.

Heimurinn hennar Sólu

Sóla birtist mér sem forvitin stelpa sem upplifir náttúruna ekki aðeins sem umhverfið í kringum sig, heldur sem eitthvað sem hún getur hlustað á, lært af og fundið sig sem hluta af.

Ferðalag hennar í fyrstu bókinni hefst með áherslu á jörðina og tenginguna við hana.

Ljóð úr ferðalagi Sólu

Þar uppgötvar hún hvernig náttúran talar til okkar á sinn hljóðláta hátt, í gegnum trén, fuglana, vindinn og allt það smáa sem við förum að taka eftir þegar við hægjum á okkur. Hjarta sögunnar er góðvild og umhyggja; fyrir náttúrunni, hvert öðru og okkur sjálfum.

Í heimi Sólu er líka mildur andlegur undirtónn. Hann tengist ekki ákveðnum trúarbrögðum eða einni lífsskoðun, heldur þeirri tilfinningu að lífið sé samofið, að náttúran búi yfir visku. Börn skynja oft þessi tengsl á mun fyrr en við fullorðna, upptekna fólkið!

Bókaflokkurinn um Sólu er mín leið til að leiða saman tvo heima sem ég hef verið svo upptekin af undarnfarin ár: og það er, vinnan mín í kringum sjálfbærni og eigin tengsl við náttúruna, ímyndunaraflið og jörðina.

Ljóð úr ferðalagi Sólu

Ég vona að bækurnar skapi ljúfar stundir þar sem börn og fullorðnir geta staldrað við spjallað, tekið eftir og kannski horft aðeins öðrum augum á náttúrna, skóginn og blómin í kringum sig.

Velkomin í heim Sólu

Bækurnar um Sólu eru tvítyngdar bækur fyrir börn og fullorðna til að lesa og njóta saman. Þær eiga rætur í íslenskri náttúru og sækja innblástur í fimm grunnþætti sjálfbærrar þróunar: jörðina, mannkynið, hagsæld, samstarf og frið — Planet, People, Prosperity, Partnership and Peace.

Í bókunum fléttast saman náttúra, góðvild og tengsl. Hver bók býður okkur að hægja á og uppgötva eitthvað nýtt.

Allar bækurnar eru með ljóðum bæði á íslensku og ensku.

Fyrsta bókin, Ferðalag Sólu, kom út árið 2026. Hún er 32 blaðsíður og markar upphafið að ferðalagi Sólu um grunnþættina fimm. Fyrsta ferðalagið tilheyrir jörðinni.

Útgáfuár: 2026
Blaðsíðufjöldi: 32
Útgefandi: BGlobal
Bókahönnun: Bryony Simmonds, Heartstone House

Ferðalag Sólu fæst nú á Amazon og í helstu bókaverslunum á Íslandi. Þér er líka alltaf velkomið að hafa samband við mig beint á berglind@bglobal.is.

Kaupa Ferðalag Sólu →