Velkomin á BGlobal
Hæ, ég heiti Berglind og er rithöfundur og markþjálfi með bakgrunn í sjálfbærni. Í öllu mínu starfi kemur sama spurningin aftur og aftur:
Hvernig getum við hlúð betur að okkur sjálfum, hvert öðru og jörðinni og látið þau tengsl endurspeglast í því hvernig við lifum og störfum?
Í meira en tvo áratugi hef ég starfað að sjálfbærni á ólíkum vettvangi, meðal annars með fyrirtækjum, alþjóðastofnunum, félagasamtökum og háskólasamfélaginu.
Sú reynsla hefur kennt mér að sjálfbærni verður ekki til með stefnum, mælikvörðum og áætlunum einum saman.
Hún snýst fyrst og fremst um fólk.
Um að hafa kjark til að leiða breytingar.
Um að halda í tilganginn þegar verkefnin verða flókin.
Um að hlúa að okkar eigin sjálfbærni á sama tíma og við vinnum að breytingum í heiminum í kringum okkur.
Þarna varð BGlobal til. Ef jörðin á að "heilast" - þá þurfum við af öllu hjarta að finna fyrir henni og gefa til baka.
Í dag vinn ég með fólki sem starfar að sjálfbærni og vill finna aukna ró og styrk í starfi sínu. Ég styð einnig fyrirtæki sem þurfa auka augu til að fara yfir stöðuna, sjá hvað skiptir máli og finna raunhæf næstu skref.
En BGlobal hefur líka orðið vettvangur fyrir að skrifa og gefa út bækur.
Á síðustu árum hafa þau orðið sífellt stærri hluti af starfi mínu. Fyrsta barnabókin mín, Ferðalag Sólu, varð til með sömu sýn og BGlobal byggir á, eða þeirri trú að þegar við hægjum á og gefum náttúrunni rými innra með okkur, finnum við tengslin við okkur sjálf og náttúruna, sem auðvelt er að missa sjónar á í amstri dagsins.
Náttúran hefur alltaf verið minn helsti orkubolti, hún gefur mér bara hlýju og milda orku. Hún minnir mig alltaf á að breytingar þurfa ekki að gerast með látum. Þær geta líka byrjað í kyrrðinni, með forvitni og umhyggju.
Kannski er það rauði þráðurinn í öllu sem ég geri.
Tengslin við okkur sjálf. Við hvert annað. Og við jörðina.
Ef eitthvað af þessu talar til þín vona ég að þú finnir hér hugmyndir, sögur eða stuðning sem nýtist þér á þinni vegferð.
Vertu hjartanlega velkomin.