Bækur & sögur
Sögur og ljóð um náttúruna, samkenndina og tengingar við jörðina.
Sögur og ljóð um náttúruna, samkenndina og tengingar við jörðina.
Einstaklingsmiðaðir markþjálfunartímar sem styðja við fólk í sjálfbærnigeiranum.
Oft er þörf á sýn þriðja aðila á sjálfbærnivegferðina, stefnu, framsetningu og næstu skref.
Hæ, ég heiti Berglind.
Ég skrifa barna- og ljóðabækur og býð fólki sem starfar að sjálfbærni upp á markþjálfun. Í öllu mínu starfi er mér umhugað um að styrkja tengsl okkar við jörðina og skapa meira rými fyrir bæði hug og hjarta í þeirri vegferð að hlúa að og heila plánetuna.
Í rúma tvo áratugi hef ég starfað að sjálfbærni á ólíkum vettvangi og kynnst fjölmörgu fólki sem leggur krafta sína í að skapa betri framtíð fyrir okkur öll. Mér hefur fundist áhugavert að fylgjast með þróuninni, en jafnframt séð hvernig sjálfbærnistarfið getur orðið óþarflega þungt fyrir fólkið sem ber það áfram.
Sú reynsla hefur kennt mér að stefnur og mælikvarðar duga ekki einir og sér. Sjálfbærni þarf líka að eiga rætur í heilindum og í því hvernig við komum fram hvert við annað, hvernig við störfum og tökum ákvarðanir. Ekki síður hvernig við umgöngumst náttúruna, sem er hluti af okkur sjálfum.
Þess vegna skiptir máli að rækta tengslin við það sem skiptir okkur raunverulega máli.
Tengslin við okkur sjálf. Við hvert annað. Og við jörðina.
Með sönn tengsl skapast betri jarðvegur fyrir vellíðan, seiglu og ákvarðanir sem við getum staðið með til lengri tíma.
Hér finnur þú sögur, ljóð og bækur sem eiga rætur sínar að rekja til íslenskrar náttúru og eru skrifaðar til að næra undrun, hlýju og tengsl okkar við jörðina.
Bækurnar eru fyrir unga lesendur jafnt sem þá fullorðnu sem lesa með þeim. Þær bjóða okkur að hægja á, staldra við og gefa gaum að fegurðinni og lífinu sem er allt í kringum okkur.
Ljóðin urðu til einmitt þess vegna. Þau kalla á hægari lestur, kyrrð og nærveru. Og kannski er það einmitt þar, í kyrrðinni, sem við finnum aftur tengslin við náttúruna, og orkuna sem streymir í gegnum hana og okkur öll.
Skrifin eru mín leið til að deila þeirri vegferð.
Ég vona að sögurnar finni leið til þín og mæti þér þar sem þú ert.
Ferðalagið með Sólu opnar heim þar sem náttúran, góðvildin og tengslin við jörðina vísa veginn.
Ljóðabókin er á bæði íslensku og ensku og er ætluð börnum og þeim sem lesa með þeim.
Sóla er forvitin stelpa sem elskar skóginn nálægt heimili sínu. Hún tekur eftir dýrum, hlustar á hljóðin í kringum sig og uppgötvar smám saman að náttúran getur veitt hlýju og öryggi, rétt eins og góður vinur.
Útgáfuár: 2026
Blaðsíðufjöldi: 32
Útgefandi: BGlobal
Bókahönnun: Bryony Simmonds, Heartstone House.
Lærum að hlusta
Tengjum okkur við náttúruna sem býður upp á endalausa möguleika til heilunar. Útfrá þeim stað náum við að lifa með góðum ásetningu og sannri sjálfbærni.
Kraftar sögusagnar
Það er svo magnað þegar sögur geta tekið okkur á flug til að hlúa að Móður Jörð.
Hægagangur í átt að vellíðan
Falleg leið okkar allra í átt að heildinni, fyrir okkur öll sem og plánetuna.
Skráðu þig hér til að fá nýjar greinar, upplýsingar um nýjar bækur eða tilboð í markþjálfun.