Hver styður fólkið sem leiðir loftslagsmál?

Who supports the people leading the change?

Í gær fylgdist ég með Loftslagsdeginum á netinu. Þar sagði marg frábært fólk frá því sem það er að gera í fyrirtækjum, stofnunum og hjá ríkinu til að vinna að loftslags- og sjálfbærnimálum.

Það var gott að hlusta og finna hvað þekkingin er orðin mikil. Ég er stolt af því hversu langt við höfum komist hér á Íslandi í vitund um umhverfis- og loftslagsmál á síðustu tíu árum. Mjög gaman að upplifa og sjá og heyra.

Ég tók sérstaklega eftir því hvað margt ungt fólk var að koma fram. Ungt fólk með stóra titla og mikla ábyrgð. Fólk sem er komið í störf þar sem það hefur áhrif og leiðir breytingar. Það er von í því.

En ég sat líka eftir með nokkrar spurningar.

Hvernig líður þessu fólki í starfi? Hvaða stuðning fær það til að takast á við þá ábyrgð sem því er falin?

Mér fannst lítið rætt um vellíðan okkar í þeim breytingum og óvissu sem við stöndum frammi fyrir. Hvernig þetta hefur áhrif á okkur sem persónur, líka þau sem vinna við þessi mál á hverjum degi.

Ég saknaði þess líka að heyra meira um Jörðina sem eina heild. Hvernig henni líður og hvernig okkar eigin líðan tengist ástandi hennar.

Þótt mikil þekking kæmi fram fannst mér samt stundum vanta að fara dýpra. Kannski einmitt í þessa mannlegu tengingu.

Þetta tengist hugleiðingum mínum í síðasta bloggi um að undirbúa framtíðarleiðtoga. Nú hugsa ég líka um þau sem eru þegar komin í þessi hlutverk. Við þurfum að styðja þau þar sem þau eru stödd í dag og gefa eigin þroska þeirra og vellíðan meira rými.

Þarna held ég að BGlobal hefur eitthvað fram að færa, eins og ég hef lagt áherslu á undanförnum tveimur árum. Að hafa Jörðina í huga felur ekki bara í sér að vinna einhverja vinnu og verkefni, heldur lílka að hlúa að fólkinu sem vinnur í hennar þágu. Þannig að það er kannski ráð að vekja meiri athygli á markþjálfuninni minni!! ...sem hægt er að bóka tíma á noona.is eða senda mér línu.

Kær kveðja,
Berglind.

0 athugasemdir

Skrifa athugasemd