Ný leið - sama markmið

Finding the new path

Undanfarið hef ég verið að skrifa meira en áður. Vinna að bók, taka saman pælingar, þróa efni og finna leiðir til að miðla því sem ég hef lært og upplifað í gegnum árin.

Þetta er annað verklag en ég hef vanist áður. Stundum sakna ég þess að vera meira í tæknilegum og fræðilegum verkefnum. Að kafa ofan í texta, greina áskoranir fyrirtækja í loftslagsmálum og velta fyrir mér hvernig við getum raunverulega breytt því hvernig fyrirtæki starfa og axla samfélagslega ábyrgð.

Ég sakna þó ekki endilega allrar aðferðafræðinnar eða þess flækjustigs sem fylgir slíkri vinnu.

Og þegar ég fer að skoða hvað fólk í sjálfbærnigeiranum er að fást við í dag, finn ég stundum fyrir ákveðnu áhugaleysi, af minni hálfu. Mér finnst við hafa gert sum verkefni óþarflega flókin. Þúsundir sérfræðinga verja ómældum tíma í ferla, kerfi og útfærslur sem ég velti stundum fyrir mér hvort séu í raun að skila okkur þangað sem við þurfum að komast.

Allir samt að gera sitt besta, ekki misskilja mig. Kannski er það ósanngjarnt mat. En þetta er engu að síður tilfinning.

Á sama tíma hef ég uppgötvað hvað mér finnst ótrúlega skemmtilegt að skrifa. Að skapa eitthvað nýtt úr reynslu, þekkingu og hugleiðingum. Að setja orð á það sem er að gerjast í huganum.

Núna er ég því að reyna að finna einhvern milliveg. Að halda í fræðilega forvitni mína og áhuga á raunverulegum áskorunum sjálfbærninnar, en gefa sköpuninni líka það rými sem hún á skilið.

Þetta er nýr kafli. Öðruvísi vinnubrögð, annar fókus og eiginlega alltaf eitthvað nýtt í hverri viku. 

Og kannski er það einmitt það sem mér finnst spennandi við þetta.

Ég veit ekki alveg hvernig þessi blanda mun þróast. Smá óviss með þetta akkúrat núna. En mér finnst spennandi að leyfa mér að kanna áttina.

Kannski þarf ég ekki að velja á milli þess að vera fræðilega þenkjandi og skapandi.

Kannski er ég ekki að fjarlægjast sjálfbærnimálin. Kannski er ég einfaldlega að finna nýja leið til að nálgast þau.

Áfram hugsa ég hnattrænt, og reyni að gefa og miðla góðvild.

Kær kveðja,
Berglind. 

 

0 athugasemdir

Skrifa athugasemd