🌿Ferðalag Sólu og heilun jarðar 🌿
Nú er fyrsta bókin um Sólu komin út og mig langar að segja ykkur örlítið frá því hvernig hugmyndin að henni varð til.
Í starfi mínu á sviði sjálfbærni hefur mig langað til að hugsað betur um fólkið sem vinnur að því að hlúa að jörðinni. Margt af því er ungt fólk sem leggur mikið á sig í starfi, á fjölskyldu og hefur í mörg horn að líta. Ég hef markþjálfan mörg, en hef hug á að gera meira af því.
Ég fór að velta fyrir mér hvernig mætti hlúa betur að þeim, því þau hafa kannski ekki alltaf tíma til að setjast niður með bók fyrir sjáflt sig, en gefur sér oftar en ekki tíma til að lesa fyrir börnin á kvöldin.
Þarna var mér bent á konzeptið í kringum Sólu.
Ég fann síðan með mér að það væri tilvalið að móta sögur sem börn og fullorðnir gætu notið saman. Sögur sem vektu forvitni barnanna um náttúruna, en minntu um leið fullorðna fólkið á hversu mikilvægt það er að finna fyrir tengslunum við hana og sækja þangað styrk.
Ekki enn eina áminninguna um allt sem við þurfum að gera fyrir jörðina, heldur stund þar sem við fáum að njóta náttúrunnar og rækta umhyggju fyrir henni, saman.
Þótt hugmyndin hafi kviknað út frá fólki sem starfar að sjálfbærni eru sögurnar um Sólu ætlaðar öllum börnum. Fremst í bókinni stendur:
„Þessi bókaflokkur um ferðalag Sólu er tileinkaður öllum börnum jarðar.“
Um bókina
*Ferðalag Sólu og heilun jarðar* er fyrsta bókin í fyrirhuguðum fimm bóka flokki sem byggir á fimm undirstöðum sjálfbærninnar.
Bókin er í bundnu máli, bæði á íslensku og ensku, og hugsuð fyrir notalegar lestrarstundir barna á aldrinum 3–8 ára með fullorðnum.
Ég vona að Sóla veki forvitni, færi ykkur góðar samverustundir og hjálpi okkur að muna hversu dýrmæt tengsl okkar við náttúruna eru.
Hvar fæst bókin?
Á vefsíðunni bglobal.is og á Amazon og Kindle, og í bókabúðum Pennans/Eymundsson & Bókakaffi í Ármúla og Selfossi, já og einnig Betra líf í Kringlunni.
Með hlýjum kveðjum,
Berglind 🤍
0 athugasemdir