Í dag, 10.10, er formlegur útgáfudagur bókarinnar Ferðalag Sólu og heilun jarðar: Hvernig náttúran meðtekur góðvild. 🌿
Það hefur verið ótrúlega áhugavert að fara í gegnum þetta ferli, enda hefur mig lengi dreymt um að gefa út bók. Nú er sú fyrsta loksins komin í bókabúðir.
Sagan um Sólu er í raun mun stærri. Ég hef þegar mótað meginþráðinn í fimm bóka röð sem byggir á fimm undirstöðum sjálfbærninnar. Mér fannst þó skynsamlegt að stíga fyrsta skrefið, kynnast útgáfuferlinu og læra af því áður en ég gæfi allar bækurnar út.
Í gær þótti mér svo sérstaklega ánægjulegt að sjá heimsþekktan fyrirlesara um loftslagsmál og heilsu jarðar standa frammi fyrir fullum sal með merki heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í jakkanum.
Það rifjaði upp fyrir mér árið 2012, þegar undirbúningur þeirrar alþjóðlegu samvinnu sem síðar leiddi til heimsmarkmiðanna var að hefjast. Þá fann ég fyrir mikilli hlýju og bjartsýni gagnvart sameiginlegum vilja mannkyns til að móta betri heim fyrir komandi kynslóðir.
Fyrirlesturinn var mjög áhugaverður þar sem leiðarljósið var hvernig við gætum varðveitt lífkerfi jarðar og hver staðan væri í dag.
Ég bar merki heimsmarkmiðanna lengi og var þakklát fyrir að fá að vinna að þeim strax á fyrstu stigum hér á landi, sem framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna.
Þessi þráður hefur aldrei slitnað. Nú heldur hann áfram með fyrstu sögunni tengda "jörðinni" með Sólu minni, sem leggur af stað út í heiminn með kærleikann að leiðarljósi, til barna hvar sem þau búa.
Með von um að þið njótið bókarinnar vel.
Hlý kveðja,
Berglind

0 athugasemdir