Gefum börnum rými til að hlusta

Give kids opportunity to notice

Mig langaði ekki til að hanna enn einn listann yfir það hvað börn ættu að gera til að "bjarga" jörðinni.

Þegar ég byrjaði að skrifa "Ferðalag Sólu" vissi ég að mig langaði að skrifa sögur fyrir börn sem færðu þau nær jörðinni. En mig langaði ekki að skrifa bækur sem útskýrðu sjálfbærni eða bættu við enn einni hugmyndinni hvernig ætti að flokka rusl.

Mig langaði að skrifa sögur sem færðu þau nær náttúrunni.

Sóla er forvitin um heiminn í kringum sig. Hún tekur eftir því sem hún sér, spyr spurninga og kynnist dýrum, plöntum og náttúrunni. Hún finnur vináttu og hlýju frá þeim öllum og tengist þeim á einhvern hátt.

Kannski þarf umhyggja fyrir náttúrunni ekki alltaf að hefjast á því að kenna börnum hvað þau eigi að gera. Hún getur einnig hafist á því að gefa þeim tækifæri til að taka eftir, upplifa og finna fyrir, ....þar upplifa þau að þau séu eitt og hið sama. 

Næst þegar þú ert úti með barni gefðu því einfaldlega tíma og rými til að veita umhverfinu athygli. Hjálpaðu smá með spurningum og spjalli við tréin eða það sem þið sjáið. Svo nærandi og gaman :

0 athugasemdir

Skrifa athugasemd