Stundum hjálpar hún okkur einfaldlega

What I had been looking for

Jörðin fær á sig annan blæ þegar við lítum ekki á hana sem eitthvað utanaðkomandi. Heldur þegar við finnum fyrir orkunni, þá nær hún okkur einhvern veginn. Við skynjum vellíðan.

Þegar við verjum tíma í náttúrunni /með náttúrunni og finnum fyrir þessu, hvernig við tilheyrum henni, breytist eitthvað. Við þurfum ekki að "vernda hana" heldur verður tengingin nær því að vera einhvers konar samstarf. Því hún gefur okkur alltaf eitthvað til baka. Hún veitir okkur jarðtengingu og rými. Fegurð og innri vellíðan.

Stundum hjálpar hún okkur einfaldlega að anda.

Og kannski var það einmitt þetta sem ég hafði leitað að allan tímann. Ekki aðeins tengsl við jörðina, heldur einnig við mig sjálfa og heiminn sem við tilheyrum. Kannski ekki það auðveldasta að útskýra þetta.

Þar af leiðandi finnst mér mikilvægt að það komi fram í gegnum það sem ég er að skrifa, kannski hefst sjálfbærni mun nær okkur sjálfum en við höldum. Hún er stöðugt að hjálpa okkur og umvefur vellíðan og hlýju.


***

Næst þegar þú ert úti í náttúrunni skaltu prófa að sleppa því að gera eitthvað sem á að vera gagnlegt. Maður er alltaf að reyna "besta" hverja stund, amk geri ég það. Mjög gott að taka einfaldlega eftir því hvar maður ert, hvað er í kringum þig og hvernig það er að vera þar. Þá finnurðu vonandi fyrir því sem ég er að meina. 

Með náttúrukveðju,
Berglind. 

0 athugasemdir

Skrifa athugasemd