Sjálfbærnirýni & næstu skref

Sjálfbærnirýni & næstu skref

25,000 kr
Fara í upplýsingar um vöru
Sjálfbærnirýni & næstu skref

Sjálfbærnirýni & næstu skref

25,000 kr

Mörg lítil og meðalstór fyrirtæki finna fyrir auknum kröfum um sjálfbærni án þess að vita nákvæmlega hvað á við um þau.

Viðskiptavinir spyrja fleiri spurninga. Kröfur og reglur breytast. Kannski eruð þið þegar að gera ýmislegt vel en hafið ekki náð að draga það saman, eða einfaldlega er þörf á auka augum til að fara yfir stöðuna og sjá hvað skiptir mestu máli fyrir framhaldið.

Sjálfbærnirýni BGlobal er einföld leið til að fá góða mynd af því hvar fyrirtækið stendur í dag og hvert væri skynsamlegt að stefna.

Þú svarar nokkrum spurningum um fyrirtækið og það sem þegar er til staðar. Síðan eigum við 60 mínútna samtal þar sem við förum yfir stöðuna og þau málefni sem þú vilt vinna í.

Að því loknu fer ég yfir gögnin og þú færð hnitmiðað yfirlit sem dregur fram:

  • hvar fyrirtækið stendur í dag

  • helstu áhættuþætti eða hvað ber að skoða betur

  • hvaða kröfur og þróun innan ESB kunna að skipta fyrirtækið máli

  • hvernig núverandi sjálfbærniskilaboð fyrirtækisins koma fyrir út á við

  • þrjú atriði sem skynsamlegt væri að setja í forgang

Markmiðið er ekki að bæta enn einu löngu skjalinu við verkefnalistann. Það er að gefa þér betri yfirsýn og raunhæfa punkta til að vinna að.

Fyrir hverja?
Eigendur og stjórnendur lítilla og meðalstórra fyrirtækja og fólk sem ber ábyrgð á sjálfbærnimálum. 

Fyrirkomulag
60 mínútna fjarfundur og skriflegt yfirlit.

Verð
Verð fer eftir umfangi. Hafðu samband við berglind@bglobal.is eða bókaðu stutt samtal til að kanna hvort þetta gæti gagnast fyrirtækinu.
Einnig má bóka í gegnum Noona.