Persónuleg markþjálfun: 3 samtöl

Persónuleg markþjálfun: 3 samtöl

50,000 kr
Fara í upplýsingar um vöru
Persónuleg markþjálfun: 3 samtöl

Persónuleg markþjálfun: 3 samtöl

50,000 kr

Persónuleg markþjálfun – þrjú samtöl

Stundum getur verið gott að staldra við og gefa sér tíma til að skoða hvar maður stendur í starfi, hvað skiptir mann máli og hvert maður vill stefna.

Ég býð nú upp á stutt markþjálfunarferli fyrir fólk sem er á fyrstu árum starfsferilsins á sviði sjálfbærni og umhverfismála.

Í þremur persónulegum samtölum skoðum við það sem þú ert með á borðinu þessa dagana. Það getur tengst stefnu fyrirtækis þíns, eða þína eigin stefnu í lífinu, eigin styrkleikum, faglegum áskorunum, samskiptum við kollega eða fjölskyldu. Þar að auki hugum við jafnframt að þinni eigin velferð og vellíðan.

Ég vinn út frá reynslu í kringum sjálfbærnistarf og markþjálfun, ásamt þeirri hugsun að tengsl okkar við náttúruna og okkur sjálf geti verið mikilvægasti hlutinn af því að finna sína eigin leið.

Samtölin taka þannig mið af þínum þörfum og ekki endilega bundin við fyrirfram ákveðið efni, þótt ég styðjist við ákveðna hugmyndafræði og aðferðir.

Fyrirkomulag

  • Þrjú 50 mínútna samtöl á 4–6 vikum.

  • Á netinu eða í eigin persónu eftir aðstæðum.

  • Einfaldar, valfrjálsar ígrundunaræfingar á milli samtala þegar það á við.

Ef þú ert að velta fyrir þér hvort markþjálfunin gæti hentað þér er þér velkomið að bóka stutt kynningarsamtal án kostnaðar eða skuldbindingar.