Skrá mig á póstlista Berglindar
Gerast áskrifandi að gagnlegu efni frá Berglind
Þér var falið stórt verkefni, en kannski fylgdi hvorki nægilegt fjármagn né stuðningur með. Það er ætlast til þess að þú hafir svörin, fylgist með síbreytilegum kröfum og sinnir jafnvel mörgum ólíkum hlutverkum í einu.
Það er nóg til af námskeiðum, vottunum og upplýsingum um sjálfbærni. En stundum vantar einfaldlega stuðning við daglegan veruleika starfsins.
Þessi 1:1 markþjálfun er fyrir sjálfbærnistjóra, verkefnastjóra, ESG-sérfræðinga og annað fólk sem starfar að sjálfbærni og vill hafa reyndan og traustan samtalsfélaga til að hugsa hlutina til enda með.
Við vinnum með það sem er raunverulega á borðinu hjá þér hverju sinni. Það gæti verið undirbúningur fyrir mikilvægan fund, samskipti við stjórnendur eða hagsmunaaðila, áskoranir í samstarfi, skýrslugjöf, forgangsröðun eða erfið samtöl innan vinnustaðarins. Markmiðið er að skapa rými til að staldra við, sjá stöðuna skýrar og byggja smám saman upp meira öryggi og styrk í eigin starfi.
Fundirnir eru 50 mínútur og fara fram í fjarfundi. Ef þú hefur fundaraðstöðu og ert á höfuðborgarsvæðinu, get ég auðvitað rúllað til þín. Tímarnir eru með skýran ramma en innihaldið mótast af því sem þú þarft mest á að halda hverju sinni.
Á milli funda getur þú sent mér skjöl til yfirferðar og spurningar sem tengjast því sem við erum að vinna með.
Fyrir hverja?
Fólk sem starfar að sjálfbærni og vill hagnýtan, persónulegan stuðning við raunverulegar áskoranir starfsins.
Fyrirkomulag
50 mínútna fjarfundir. Samstarfið er að lágmarki þrír mánuðir.
Verð
20.000 kr. + vsk. fyrir 50 mínútna fund.
Byrjum á stuttu samtali til að sjá hvort þetta sé rétti stuðningurinn fyrir þig.
Bóka hér á Noona.
Afhending ekki í boði eins og er